1. |
Ertu að taka upp?
00:41
|
|||
2. |
Karl og kerling
04:09
|
|||
Ég beini sprautunni í átt að ósjálfbjarga kösinni
Sendi þau örmagna heim ég er drottningin á hæðinni
Horfðu í augun á mér, á slóðina sem fylgir mér
Með lífverði, brynklædda
Komdu við, leyfðu mér að sjá
Horfðu í brotna smásjánna
Ég bý á tvívíðum ás með konu, börn og trampolín
Brenn milli tveggja heima, ber mig og brynja
Og bjöguð skilningavitin sem kljúfa þögnina
Með lífverði, brynklædda
Komdu við leyfðu mér að sjá
Horfðu í brotna smásjánna
Tengdu mig við almáttuga
|
||||
3. |
Friðþæging
04:54
|
|||
Ég er hætt, hætt að bíða,
breiddu faðminn út fyrir mig
Krýndu mig einráða
Krýndu mig keisara
Brennt saman, saumað fyrir
Hleyptu stærstu djöflunum út
Gældu við þyrnana
Sprengdu hliðið upp á gátt
Spyrntur við eitraða rödd
Sem að nærist innan frá
Eitthvað til að friðþægja
En enginn hlustar á
Ég er róleg og tilbúinn
Því ég enda hvort sem er
Reyrð í sömu viðjarnar
Spyrntur við eitraða rödd
Sem að nærist innan frá
Eitthvað til að friðþægja
En enginn hlustar á
Ég er róleg og tilbúinn
Því ég enda hvort sem er
Reyrð í sömu viðjarnar
|
||||
4. |
Ofbirta
04:41
|
|||
Víðátturnar og ljósin
Eru dáleiðandi, fábreytnin og þögnin
Breytir árunum í duft
Og við prófum hvað sem er, hvað sem er
Við berjum frá okkur,
Ég vil baða mig í bæjarljósunum
En þetta, þetta er kvalræði
Og við brjótum hvað sem er,
Hvað sem er, hvað sem er
Við göngum í takt við vélarhljóðin
Við snúumst í takt við tannhjólin
Við áttum allt
Við berjum frá okkur,
Ég vil baða mig í bæjarljósunum
En þetta, þetta er kvalræði
Og við brjótum hvað sem er,
Hvað sem er, hvað sem er
|
||||
5. |
Tímafrekja
05:24
|
|||
Vígtennurnar sökkva á bólakaf
Og þú hefur mig á þínu valdi
Martraðirnar töldu honum trú um það
Dagar alsælunnar, væru taldir
Réttu mig af, stígum samstíga
Í þennan síðasta dans, bundin blóði
Rjúkum af stað, bara þú og ég
Sendum vitundina á nýjar slóðir
Við snúumst í hringi og það fer sem fer
Gröfum djúpt og drögum fram það ljóta
Þar til skórnir slitna, þar til vitið visnar
Og við líðum sátt
Frá borðunum sem okkur tókst að brjóta
Í átt að ljósunum á leiðarenda
Og það fer sem fer
Gröfum djúpt og drögum fram það ljóta
Þar til skórnir slitna þar til vitið visnar
Og við líðum sátt
Frá borðunum sem okkur tókst að brjóta
Í átt að ljósunum á leiðarenda
|
||||
6. |
Írena Sírena
03:55
|
|||
Hjartað molnar í hvert sinn sem
Minningin bergmálar, en við berum það svo vel
Ég fell í yfirlið hvert sinn sem ég
Reyni að skilja það, því þú felur það svo vel
Undirstaðan nötrar og skelfur, á ég að berjast við það?
Þegar ég lyppast svo niður við fæturna þína
Og nú þýðir ekkert minna, blóðbað og heimsendir,
en mér líður samt svo vel
Og þið geislið og syngið, dáleiðið, leyf mér að finna það,
því þú gerir það svo vel
Undirstaðan nötrar og skelfur, á ég að berjast við það?
Þegar ég lyppast svo niður við fæturna þína
Ólin læsist um hálsinn á mér, og ég svamla í mannlega sorpinu sem
Sem að öskrar og klórar og togar í mig,
ég er afklæddur vopnlaus, get ekkert gert
Þegar hornin svo hrökkva af hausnum á mér
Og ég skjögra um ringlaður afvegaleiddur
|
||||
7. |
Drunur
05:35
|
|||
Sólin er horfin, á ég að loka augunum?
Ég vildi að ég hefði komist lengra.
Himininn fölnar, jörðin hún titrar, finnurðu?
Ég hefði átt að gera miklu meira.
Myrkrið það nálgast, drunurnar hækka, heyrirðu?
Ég geri mig tilbúinn að dreyma
Himininn rifnar, jörðin hún brestur finnurðu?
Ég læt eins og ég sé með þér heima.
Við leysumst upp, rennum saman
Óhljóðin fjarlægjast og dvína
Eilíf ró fyrir mig og hana
Tómið allsstaðar
|
||||
8. |
Andy Svarthol
04:30
|
|||
9. |
Oculi Cordis
05:09
|
|||
Einfaldleikinn vekur mig úr dái
Ber kennsl á mig í gegn um skarann
Fyrir hverja örðu sem ég sái
Brenna himinhvolf og falla saman
Þau blása leitina af,
Stóru tjöldin falla
Og ég dreg mig náðarsamlega tilbaka
Jörðin spýtir upp því sem ég sái
Sýgur heiftina úr mergnum
Óttinn drepur allt það sem ég þrái
Rífur gat í gegn um bringuna
Þau blása leitina af, stóru tjöldin falla
Og ég dreg mig náðarsamlega tilbaka
Þau blása leitin af, stóru tjöldin falla
Og ég dreg mig náðarsamlega tilbaka
|
Streaming and Download help
If you like Andy Svarthol, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp